Government Offices of Iceland

04/17/2024 | Press release | Distributed by Public on 04/17/2024 04:25

Kynning á breytingum á örorkulífeyriskerfinu – bein útsending 22. apríl kl. 11:00

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu í beinni útsendingu mánudaginn 22. apríl kl. 11:00. Fundinum verður streymt á vef Stjórnarráðsins. Markmið breytinganna er að einfalda örorkulífeyriskerfið, draga úr tekjutengingum og gera kerfið réttlátara.

Fyrirhugaðar breytingar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi - sérstaklega fyrir þau sem einungis fá greiðslur frá almannatryggingum eða eru með litlar aðrar tekjur. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

Lengi hefur verið brýnt að endurskoða örorkulífeyriskerfið og mælti ráðherra á dögunum fyrir frumvarpi á Alþingi vegna breytinganna.

• Sjá samantekt um fyrirhugaðar breytingar

Einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi

"Hér er umbyltingu að ræða og mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi," segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

"Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu. Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður og búum til hvata til að gera því kleift að blómstra. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum, aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli."

Frumvarpið var unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og er afrakstur víðtæks samráðs við helstu haghafa, stofnanir, önnur ráðuneyti og aðra hlutaðeigandi.