The President of Iceland

04/25/2024 | Press release | Distributed by Public on 04/26/2024 06:00

Reykir og Mið-Fossar

Fréttir|25. apr. 2024

Reykir og Mið-Fossar

Forseti sækir hátíðarsamkomur í tilefni sumardagsins fyrsta. Að Reykjum í Ölfusi afhenti forseti garðyrkjuverðlaun Garðyrkjuskólans og umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar. Bjarki Jónsson hjá Skógarafurðum ehf hlaut hvatningarverðlaun garðyrkjunnar, Gróðrarstöðin Kjarr var verðlaunuð sem verknámsstaður garðyrkjunnar og tók Helga Ragna Pálsdóttir, garðyrkjufræðingur á móti þeim verðlaunum. Þá var Friðrik Baldursson, garðyrkjufræðingur og garðyrkjustjóri Kópavogs, sæmdur heiðursverðlaunum garðyrkjunnar. Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar voru veitt básaleigunni Verahvergi og Rósakaffi, sem hjónin Guðmundur Nielsen og Jóna Sigríður Gunnarsdóttir reka við Breiðumörk 3 í hjarta bæjarins.

Leið forseta lá síðan að Mið-Fossum í Andakíl þar sem hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands er til húsa. Þar sótti forseti Skeifudaginn, uppskeruhátíð nemenda, og afhenti Morgunblaðsskeifuna. Að þessu hlaut Sunna Lind Sig­ur­jóns­dótt­ir frá Efstu-Grund und­ir Eyja­fjöll­um þau verðlaun.

Deila