Origo hf.

10/22/2021 | Press release | Distributed by Public on 10/22/2021 07:44

Stórt skref til að tryggja hagsmuni fyrirtækja

TM tryggingar hafa í samstarfi við Origo stigið stórt skref í að tryggja betur hagsmuni fyrirtækja með að bjóða upp á netöryggistryggingu.

,,Netöryggi og þekking starfsfólks á þeim áhættum sem fylgja meiri notkun á nettengdum lausnun er orðin stór partur af fyrirtækjarekstri. Það eru töluvert meiri líkur á að fyrirtæki verði fyrir skaða og rekstrarstöðvun af völdum netglæpa en það lendi í áður þekktum tjónum eins og bruna, vatnsleka eða náttúrhamförum," segir Örn Þór Alfreðsson, framkvæmdastjóri hjá Origo.

,,Þetta er mjög mikilvægt og þarft skref að bjóða upp á þessa þjónustu. Það er vel þekkt að framleiðslufyrirtæki hafa lengi haft möguleika á að tryggja sig fyrir rekstrarstöðvun og er þessi trygging að koma inn sem góð viðbót. Fyrirtæki þurfa í meira mæli að treysta á uppitíma og öryggi tölvukerfa," segir Örn.

Hann bendir jafnframt á að netöryggistrygging ein og sér sé ekki vörn, en undanfari þess þarf að skoða núverandi netvarnir fyrirtækja sem óska eftir slíkri tryggingu.

Áður en gefið er út tryggingaskírteini er úttekt á núverndi vörnum og metið hvort varnir séu í samræmi við best practices og komið með ábendingar um hvað betur megi fara til að fyrirtæki séu með sem mest uppfærðar varnir áður en tryggingaskírteini er gefið út. Fyrirtæki fá einnig í hendur lista yfir helstu áhættur sem ber að varast er snýr að starfsmönnum sjálfum og auk þess vinnureglur í kringum tölvupósta sem eru að flæða inn frá aðilum sem ekki eru þekktir o.s.frv.

Origo hefur unnið náið með TM undanfarið ár í að skilgreina og tengja saman trygginguna við úttekt á netöryggi, ráðleggja og gera viðeigandi breytingar þannig að tryggingataki sé sem mest varinn fyrir mögulegum netárásum

,,Við erum stolt af góðu samstarfi og óskum TM til hamingju með frábært framtak í að auka netöryggisvitund, bjóða upp á tryggingu sem öll fyrirtæki ættu að vera með, tryggja þannig sterkari rekstrargunn og meiri uppítíma tölvukerfa," segir Örn ennfremur.