Kvika banki hf.

09/19/2021 | Press release | Distributed by Public on 09/19/2021 14:49

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

September 19, 2021 16:43 ET| Source: Kvika banki hf.Kvika banki hf.

Reykjavík, ICELAND

Icelandic English

Í viku 37 keypti Kvika banki hf. ('Kvika' eða 'bankinn') 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 191.400.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
13.9.2021 11:24:11 2.000.000 24,60 49.200.000
14.9.2021 11:26:12 2.000.000 23,80 47.600.000
15.9.2021 09:44:06 1.000.000 23,60 23.600.000
15.9.2021 10:07:00 1.000.000 23,40 23.400.000
17.9.2021 09:47:37 1.000.000 23,80 23.800.000
17.9.2021 13:23:48 1.000.000 23,80 23.800.000
Samtals 8.000.000 191.400.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.

Kvika átti 75.500.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 83.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.010.087.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið 'Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.'

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.