03/23/2023 | Press release | Distributed by Public on 03/23/2023 05:09
Eftirfylgniskýrsla starfshóps OECDum mútubrot í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery) vegna fjórðu úttektar Íslands var formlega samþykkt á fundi hópsins þann 7. marssíðastliðinn.
Í skýrslunni er einkum lagt mat á árangur íslenskra stjórnvalda við að innleiða tilmæli starfshópsins sem beint var til stjórnvalda í kjölfar 4. úttektar hans á framkvæmd og innleiðingu samnings OECD um mútubrot (e. Anti-Bribery Convention) hér á landi.
Í skýrslunni kemur fram að af þeim 28 tilmælum sem beint var til stjórnvalda hafa 6 þeirra verið innleidd að fullu, 19 hafa verið innleidd að hluta til en 3 tilmæli teljast ekki hafa verið innleidd. Í niðurstöðum skýrslunnar er lögð sérstök áhersla á aðgerðir stjórnvalda til að efla getu til rannsókna á mútubrotum auk nauðsynlegra lagabreytinga sem gerðar voru og varða hámarkslengd refsinga, upptöku eigna, refsiábyrgð lögaðila og refsiákvæði hegningarlaga um mútubrot. Í skýrslunni lýsir starfshópurinnþó einnigáhyggjum yfir því að íslensk yfirvöld hafa enn ekki lokiðrannsókn á broti er varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmannaog eru stjórnvöld hvött til að efla enn fremur getuna til að koma upp um og rannsaka slík mál.
Með hliðsjón af því hve mörg tilmæli hafa verið innleidd af hálfu stjórnvalda er ekki gerð krafa um að Ísland skili frekari eftirfylgniskýrslum vegna 4. úttektar en starfshópurinn mun þó áfram fylgjast með framvindu mála hér á landi.
Sjá nánar: