05/07/2024 | Press release | Distributed by Public on 05/07/2024 07:51
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað nýtt netöryggisráð. Ráðið er skipað sjö einstaklingum frá 1. maí 2024 til 30. apríl 2027. Þetta er í fyrsta sinn sem skipað er í netöryggisráð á grunni reglugerðar um netöryggisráðsem ráðherra undirritaði í desember síðastliðnum.
Hlutverk netöryggisráðs er að fylgja eftir framkvæmd stefnu stjórnvalda á sviði net- og upplýsingaöryggis. Ráðið leggur mat á stöðu netöryggis á Íslandi á hverjum tíma og er vettvangur upplýsingamiðlunar og samhæfingar.
Birgir Rafn Þráinsson - formaður (háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti)
Kristín Jónsdóttir - varaformaður (dómsmálaráðuneyti)
Brynja Huld Óskarsdóttir (utanríkisráðuneyti)
Ólafur Ingþórsson (fjármála- og efnahagsráðuneyti)
Þórunn J. Hafstein (forsætisráðuneyti)
Hrafnkell V. Gíslason (Fjarskiptastofa)
Guðmundur Arnar Sigmundsson (netöryggissveit Fjarskiptastofu (CERT-IS))